Dagsetning: 7-21 ágústs hópur: 8-12 manns verð: 2895 evr frá Reykjavík Innifalið: flug fram og til baka Reykjavík- Narsarsuaq Íslenskur leiðsögumaður, Ferðir innan Grænlands eins og minst er á í þessu yfirliti, Allur matur nema í bæjum er kvöldverður ekki innifalinn, né síðasti hádegisverðurinn Gisting eins og minst er á aðgöngumiði að safninu í Nanortalik Tjöld, svefnpokar og bátsklæðnaður Ekki innifalið: Tryggingar Aukaferðir: kajak 60 evr minnst 2 íslensk leiðsögn um Brattahlíð: sagan, miðaldarústir og endurgerð Þjóðhildarkirju
| Besta ævintýrið á Grænlandi
“Hitt Inuita, siglt milli ísjaka, gönguferðir, jökulsporðar skoðaðir, heitar lindir, Innlandsísinn, heimskautadýrin, norðurljós, sjáið með eigin augum breytingar á loftslagi......” Sennilega mest alhliða ferð um Suður Grænland auk flottra gönguferða um heimskautalandslag, ógleymanleg ferð um jökulsvæðin, og stærstu og flottustu fjöll og granítveggir Grænlands - Ketill og Ulamertorssuaq í Tasermiut (Ketilsfirði) sem er talinn eitt af tíu undrum heimsskautasvæðisins. Siglt milli ísjaka, borgaríss og framan við mikilúðlega skriðjökla, hinir fallegu bæir Narsaq og Nanortalik heimsóttir, - Tasiusaq, Igaliko, Sardloq og Qassiarsuk. Farið í heitu lindina í Uunartoq og horft á ísjakana reka fram fjörðinn. Sjáum norðurljósin, hvali, seli og hreindýr. Veiðum lax og þorsk, týnum krækling, sveppi og ber. Heimsækjum miðaldarústir í Brattahlíð og Görðum. Hittum innfædda. Komdu með okkur í ferð um fáfarnar leiðir Grænlands, á útjaðri menningar okkar, ferð fyrir ævintýraleitendur, löngun til að skoða óspillta náttúru og sjá hvernig hlýnun jarðar breytir venjum heimamanna. |
Tours >